Songbird
    <description>Songbird</description>
Veiii
      <description>4 Störf sem ég hef unnið við:Vegagerðin
Raftíðni ehf.
Norðlenska matborðið
Skinney Þinganes hf. 
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur: 
Pirates of the Caribean
The Boondock Saints
Jesus Christ Superstar frá ´67 eða e-ð.
Lion King
4 Staðir sem ég hef búið á: 
Hef búið á Skálafelli alla mína ævi.
4 Sjónvarpsþættir sem mér líkar við: 
Boston Legal
Treshold
Cheers
Family guy
4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum: 
Benidorm
Manchester
Vestmannaeyjar
Egilsstaðir
4 Bækur sem ég hef lesið oft: 
Ókunn öfl
Álagaeldur
Harry Potter bækurnar
Narniu bækurnar
4 Staðir sem ég vildi heldur vera... (more)</description>
I´ts alive!
      <description>Tók mig til áðan og ákvað að hnoða lífi í þessa blessaða bloggsíðu.. Var nærri því búinn að gleyma henni. Ýmislegt hefur á daga mína drifið síðan síðast, en þar sem svo langt er liðið nenni ég ekki að reyna að gera því einhver skil. Kannski helst að ég fluttist suður í menninguna í byrjun febrúar og var þar fram að páskum, er semsagt kominn aftur í fjörðinn. Í Reykjavíkinni bjó ég hjá Valda bróður og vann við rafvirkjun og var að taka hluta af meiraprófinu. 
En ef horft er fram á við þá er helst að nefna það að ég útskrifast 20 maí. Dimmiterað á föstudaginn næsta og síðan er útskriftarferðin... (more)</description>
Gallar mannsins
      <description>Ég á það til að hugsa af og til og á meðan ég lá uppí rúmi í dag og í gær hóstandi úr mér kvefi þá gafst mér extra mikill tími til að hugsa. Mér var hugsað til mannsins sjálfs og þeirra galla sem þetta fyrirbæri hefur. Ég komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn er langt frá þeirri fullkomnun sem hann telur sig hafa. Ýmsa stóra galla þarf að lagfæra áður en hann getur talið sig fullkominn. Ýmsir hlutir koma til greina, misalvarlegir. En í fyrsta sæti set ég;
      að falla í freistni..
Til eru ótalmörg dæmi sem sanna það að þetta er afar veikur hlekkur hjá manninum. Sem dæmi má... (more)</description>
Ingi.. - Kúreki og ljónatemjari.
      <description>Ég var klukkaður, og er klikkaður. Það merkir að ég eigi að setja fram fimm saðreyndir um sjálfan mig. Lagó.
      * Ég er dellukarl. Ég fæ dellu fyrir bílum, hjólum og öllu sem tengist svona sporti. 
      * Ég er sveitalubbi.
      * Ég fer aldrei að sofa þó svo að ég sé að drepast úr þreytu, endar alltaf með því að  ég     steinrotist seint og síðarmeir og vakna allveg kolruglaður á morgnana vegna svefnleysis.
      * Ég fæ samviskubit yfir öllu.
      * Ég á mjög erfitt með að treysta fólki.
Þar hafið þið það, og þá má fara yfir í aðra sálma. Af mér er ekkert að frétta nema... (more)</description>
Far away.
      <description>Mikið er ég drullu ógeðslega þreyttur á ýmsu. Það er allveg fáránlegt.. Ég held barasta að ég verði að fara að breyta aðeins til og flýja Hornafjörð í einhvern tíma. Er að spá í að breyta til og fara eitthvað annaðhvort eftir sláturvertíðina eða eftir áramót. 
Í gærkvöldi var verið að busa. Ég var kóngur og rassskellti alla busana, með spýtu... Svo náttúrulega eins góður og ég er, þá fékk ekki jafnan samviskubit um leið og var búinn að smella á bossann á þeim. En skítt með það. Í augnablikinu sit ég og blogga, spila á gítarinn og munnhörpuna og er að spá í hvað maður eigi að gera í... (more)</description>
Upprisa.
      <description>Það er réttast að reyna að henda einhverjum orðum hérna inn, en ég hef bara alls ekki verið mikið að spá í því undanfarið. Fór til benedorm í tvær vikur og var það allveg magnað, en ég nenni þó ekki að fara að rekja sögu ferðarinnar hér. Síðan ég kom heim á Hornafjörð 12 ágúst, hef ég bara verið að vinna á fullu og sulla um helgar.  Er svona kominn á það núna að taka mér góða pásu frá sullinu, enda hef ég svo sem fengið eiginlega nóg af því. 
En jæja, sumarið er víst á enda og haustrokið farið að blása og minna á sig, skammdegið er að færast yfir og maður er strax kominn með kvíða fyrir... (more)</description>
shit madur
      <description>Bara ad lata vita af mer fra benidorm, tetta er brjalad.</description>
Bræðrasaga Bjarnasona.
      <description>2. Kapítuli
Á frásögn þessari skal hefja að kynna bræður þá sem saga þessi um snýst og mun það verk vera þó æri mikið, að grunar mig að blek það sem ég hef nú muni ekki endast mér lýsingar og kynningar þeirra Bjarnasona. Eigi mun þó vera að örvænta því kaupstaðarferð verður farin innan tíðar og mun ég þá biðjast þess við kaupmann Möller, að gefa mér blek í skiptum fyrir þá skildinga sem ég hef upp safnað. 
	Bjarnasynir voru fimm talsins. Skal þeim elsta lýst í kapítula þessum en hinum bræðrum í þeim næstu. Bjarnasonur elsti bar nafn Vigfúsar föðurföður síns og sótti kosta nokkra til hans,... (more)</description>
Bræðrasaga Bjarnasona.
      <description>Bræðrasaga Bjarnasona.
1. Kapítuli.
Í héraði því sem liggur undir rótum jökuls á suðaustur horni þessa lands, má finna sýslu eina sem löngu fyrir daga Jörunds hundadagakonungs hefur verið lofuð fyrir einstaka og ægifagra náttúrusköpun, en löngum hefur verið deilt um hvort verk það sé af goðum eða guðum unnið. Ekki verður nafn sýslunnar á varir bornar, þar eð miklar deilur ganga yfir daga þessa, hvort hún beri nafn með rentu, en svo er fyrir víst, að deilist landsvæði hennar í nokkra hreppi. Ein er sú sveit í umtöluðu héraði sem af öðrum þykir bera, bæði hvað landsköpun og mannkosti... (more)</description>
Risinn upp frá dauðum
      <description>Jæja jæja..  er ekki rétt að láta aðeins vita af sér, svona svo fólk haldi að maður sé ekki dauður og grafinn. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan síðast og ég er orðinn eldri og þroskaðri síðan þá. Viðburðarríkur júní mánuðurinn var fjári góður og ýmislegt brallað, þó svo að flestir dagarnir hafi einkennst af girðingarvinnu og öðrum landbúnaðarstörfum hér í sveitinni, ég er jú landbúnaðarverkamaður. En mánuðurinn hófst á sjómannadeginum og má með sanni segja að partyin og ballið sem því fylgdi hafi aldeilis virkað vel á mann og komið manni a bragðið fyrir sumarið. Eftir þennan dag sem... (more)</description>