|
|
 |
 |
|
Saturday, May 28, 2005
Jæja jæja, afsaka lægðina undanfarið, enda hefur mikið gengið á síðan síðast. Skólinn er náttúrulega búinn og svona og maður kláraði það ágætlega, eða 31 einingu sem ég held að verði teljast bara ágætt. Það var haldið upp á það þá með reykjavíkurferð þar sem ýmislegt var baukað og verða hlutirnir þar að teljast misgóðir, ferðin átti sína toppa.
Síðan var bara verið að vinna og á dynamo æfingum þess á milli en síðan kom að Eurovision helginni en þá var haldið til Egilsstaða með góðum hóp af fólki. Verð ég nú að segja að þessi helgi hafi verið æri skrautleg.. svona í meira í lagi. Við kepptum einhvern æfingaleik þar við eitthvað lið en síðan var haldið í sumarbústað og byrjað að teiga á guðsveigum. Síðan var haldið allveg hörku gítarpartý og allir skelltu sér á ball nema ég sem var að sinna mínum hlutum. Drattaðist þó á ballið þegar þrjú kortér voru eftir og var ég þá búinn að fara í fýlu og var í hinu versta skapi sem ég hef nokkurn tíman farið í. Lenti í slagsmálum við tré en mátti nú ekki lumbra á því, vegna þess að hann Hr. Árni Gíslason sagðist eiga tréð og fór í fýlu út af því að ég sló í það. Þegar nóttin var farin að síga á seinni hlutann þá dröttuðust allir aftur í búsaðina og lenti ég í vesen þar sem dró enn þá meira niður í skapinu á mér. Snemma um morguninn laumaði maður sér síðan kojuna til strákana og lagði sig. Ég vaknaði allveg eiturhress síðan um hádegið við það að einhvern gamall karl var að berja með hamri á hruðina á herberginu okkar, fór stuttu seinna út í bíl til að fara í einhvern sumarbústað sem var hinum megin í bænum. Þá vildi nú ekki betur til en svo að löggan stoppaði mig og tók mig í blóðprufu og nú er maður bara að vona það besta. Vil koma því á hreint að ég var ekki að keyra fullur. heldur mældist eitthvað píníulítið í mér. Allavega löggan skutlaði mér aftur á Skipalækinn og ég átti að fá að keyra seinna um daginn. Þá var búið að henda okkur útúr bústaðnum, kerlingi þarna var allveg snarklikk maður, minnti á ryksuguna á fullu, svo að ég og Árni þurftum að bregða á þann leik að labba niður á Egilsstaði í skítakulda. Við hörkuðum það af okkur og svo komu hinir strákarnir með taxa og allt reddaðist og allir fengu sér eitthvað djúsí að éta. Síðan var haldið hei á leið og til að kóróna þessa vonlausu ferð sem var samt ágæt, þá sprakk á bílnum í Lóninu og svo aftur þegar ég var kominn heim í sveitina! Allveg fáránlegt.
En já síðasta vika leið bara með vinnnu og síðan í gærkvöldi þá skellti maður sér í bíltúr með Gulla, Reyni, Helgu og Benna . Við brunuðum á Klaaustur og reynir var drive en hinir voru allir blindbeyglaðir. Fórum á eitthvað ball þar sem það voru þrír á gólfinu og síðan tókum við rölt um tjaldstæðið og svona en þetta endaði allt með því að ég og benni vorum skildir eftir, hin beiluðu, nenntu ekki að vera lengur. Við Benni fundum eitthvað lið og fórum að djamma með því og síðan kl hálfátta í morgun eða eitthvað þá löbbuðu við 6km til að finna okkur gistingu, það blessaðist. Fyrir tilviljunin átti Loftur ferð frá Rvk og gat tekið okkur með heim. Rosalega gott að vera kominn í sveitina núna.
En já fleira að frétta er að ég er búinn að ákveða að þetta verður algert vitleysingasumar, endalaust djamm. Lofar allt góðu, sjómannadagsball næstu helgi, helgin þar á efttir er loftkastalinn og partí, þriðjua helgin í júní er jeppaferð og sumarbústaður og svo er bara farið að styttast í Humarhátiðina.
En hátoppur sumarsins verður án efa ferðin til Benidorm sem við nokkrir strákar erum að fara í.. Það verður bara suddalegt sko. Tvær vikur, farið út í lok júlí. Ég ætla að vona að þetta sem er að seyði á næstunni verði til þess að ég geti komist yfir hluti sem hafa hrjáð mann undanfarið. Merkilegt hvernig fólk getur farið með fólk, eins og það leiki sér að því. En jájá ekkert tuð.
Tilvitnun dagsins: ,,Á Spáni er gott að djamma og djúsa."
p.s. ég er eiginilega ennþá fullur eftir þessa Klaustursreisu.
Bið að heilsa Goolllllllllliiii gíró.
Posted at 07:49 am by ibbi
Permalink
Thursday, May 26, 2005
Þú ert æði, þú ert yndislegur, þú ert krútt!
Tilvitnun dagsins: ,,Leiktu við aðra en mig".
Posted at 07:44 am by ibbi
Permalink
Tuesday, May 24, 2005
Syndandi á móti straumnum?
Hafa orð einhverja merkingu?
Tilvitnun dagsins: .. it´s never off the table..
Posted at 07:00 pm by ibbi
Permalink
Sunday, May 22, 2005
það er búið að vera svo lengi dimmt
eilíft myrkur og aldrei birt
þú gafst mér ljós til að halda á
leyfðir mig inn í þig að sjá
opnar dyr og ég gekk þar inn
horfði beint í spegilinn
en ég fann bara ekki þig
horfði beint á sjálfan mig
viltu bjarga mér
reikandi, rótlausri sál
viltu bjarga mér
slökktu ekki nýtendrað bál
opna augun og séð þig hér
liggjandi við hliðina á mér
er það fegursta sem ég hef séð
það er svo margt sem ég vil segja þér
en hvort ég þori það veit ég ei
hvað ef þú myndir segja nei
ég myndi fara, ég græt, ég dey
viltu bjarga mér
reikandi rótlausri sál
viltu bjarga mér
slökktu ekki nýtendrað bál
Tilvitnun dagsins: Slökktu ekki nýtendrað bál.
Posted at 06:31 pm by ibbi
Permalink
Wednesday, May 11, 2005
Tvö próf eftir, Fél 323 og Saga 303. Var í Fél 103 í morgun og ég sver að ég held að ég hafi bara aldrei farið í jafn auðvelt próf. Það var eingöngu spurt um hluti sem næstum því hvert barn á að vit. Afsakið ef einhver móðgast við þetta. Var að klára núna þrjú fjölmiðlafræðiverkefni sem ég átti eftir. Nú þarf maður bara að rusla af þessum tveimur prófum sem eftir eru og þá er maður laus við skólann næstu mánuðina! Djefull verður það nú gott.
En jámm er að skella mér í bæinn á föstudaginn með honum Guðjóni karlinum á Volvonum. Fínt að gera eitthvað sniðugt áður en maður fer að vinna eins og vileysingur. Það verður vonandi fínt, kíkja á Árna og niður í bæ og eitthvað. Reyndar skildist mér að Gulli sé búinn að fylla bílinn hjá sér af einhverjum krökkum þannig það lítur út fyrir að það verði bara fjör í sænsku lestinni.
Dásemdar veður úti, glampandi sól, að vísu smá gustur, og fyrst að maður er nú laus allra mála frá heimavinnu þá getur maður sennilega farið og gert eitthvað sniðugt. Er að spá í að fara jafnvel í sund eða þrífa bílinn eða bara að gera ekki neitt og leggja mig. Það liggur allveg ágætlega á manni þessa dagana með skólalokum, hækkandi sól, og síðan bara sumarvinnunni. Verður gott að komast aðeins frá Hafnarpleizinu.
Já gleymdi að minnast á þarnæstu helgi sem verður nú allveg mögnuð ef allt gengur upp. Liðsmenn Dynamo Hafnar (um 15-18 stk.) eru að fara að spila fótboltaleik uppi á Egilsstöðum, og smahliða því verða bústaðir teknir á leigu, haldið Eurovision gítar-pulsu-Party og svo allt kórónað með balli um kvöldið. Þetta verður eflaust allveg stórskemmtileg strákaferð og margt brallað.
Tilvitnun dagsins: ,,Ég get ekki fundið, norðurljósin".
Bið að heilsa í bili, Golli.
Posted at 09:14 am by ibbi
Permalink
Tuesday, May 10, 2005
Jæja, its been a while..
Hef ekki nennt að blogga undanfarnar vikur sökum þess að ég hef haft mikið að gera og síðan hfur mig hryllt við tilhugsunina eina að skrifa eitthvað hér inn. En ég tek hér með stórt skref og byrja aftur sem aldrei fyrr og verður nóg um að skrafa.. held ég. Súperstar er lokið og er maður að vissu leyti feginn, það fór mjög mikill tími í þetta og maður þyrfti að haga öllum sínum högum eftir þessu. Þó er nú ekki laust við að maður sakni sprellsins á æfingum og krakkanna allra á sama staðnum. Þó er ekki allt komið í baklás enn, því að við erum á leiðinni með sýninguna í Loftkastallan um miðja júní og verður það án efa mjög skemmtileg reynsla sem gaman verður að taka þátt í og segja frá síðan seinna.
Skólinn hefur tekið vænan skerf af öllu undanfarið. Maður kepptist við að klára ritgerðir og verkefni fyrir prófin og slapp það svona með naumindum og eilitlum frest sem sumir kennararnir væru svo vænir að veita mér. Prófin eru síðan í gangi og í augnablikinu er ég búinn að taka 6 af 9. Allt er að stefna í rétta átt og get ekki betur séð en maður sé að klára 30+ einingar þessa önnina, sem er ágætt. Þá á ég bara einhnverjar litlar 9 einingar eða eitthvað eftir til stúdents sem ætti eftir öllu að halast inn á haustinu.
Nóg búið að vera að gera í sveitinni en mér furðar mjög svo mikla frjósemi sem ér í rollunum þetta vorið. Búinn að fá alltof margar þrílembdar og gemsarnir eru nær allir með tvö. Spurning á hverju hrútarnir hafa verið í desember þegar þeir fögnðu þess að komast í sömu stíu og ærnar. En já allaveganna þá er lambafjöldinn á milli 60-70 og ég stefni á að fá minnst 110, sem er nú mjög gott miðað við svona fáar skjátur.
Tók mig til og gerði við bílinn minn um helgina síðustu og fékk hann til að virka almennilega og túrboið til að koma á fullu bústi. Ekkert nema gott um það að segja og stórskemmtilegt að keyra bíl sem flýgur upp í annað hundraðið á no time.
Mynd af trukknum:
Ég var í samræmdu stúdentsprófi í íslensku um daginn og blöskraði mér ritunin í þessa ljóta prófi sem hefur ekki nokkurn einasta tilgang og er ekkert nema tímaeyðsla og óþarfa eyðsla á peningum. Ritunin átti að fjalla um reykingar. Málið er að ég er búinn að fá nóg af þessum helvítis öfgafullum áróðri á reykingarmenn. Þetta er nú orðið soldið ýkt allt í kringum þetta, afhverju getur maður ekki fengið að reykja eina sígarettu án þess að allt verði vitlaust alls staðar. Allt í lagi ef fólki líkar ekki reykingar en þarf það að hamra á því með tilhæfislausum og pirrani commentum eins og stundum gerist. Afhverju setur Eyjólfur ekki upp stubbahús hér við skólann frekar en að koma kolvitlaus út í annari hverri frímínutu og reka okkur í burtu út á götu. Afhverju þarf fólk alltaf að vera á commenta á margt sem gerist í kringum mann og bendla það við mann. Ef maður hóstar, þá heyrist iðulega einhvers staðar útí horni: ..reykingarhósti.. eða eitthvað álíka. Maður verður kvefaður og það er víst allt reykingum að kenna, verður reyklaust fólk ekki kvefað líka. Þetta er soldið þreytt og þetta fer orðið töluvert í taugarnar á mér, og eflaust fleirum. Andskotinn hafi það
Er annars að hugsa um að fara að læra aðeins undir félagsfræðipróf svo ég segi þetta gott í bili.
Segi öllum að fara inn á www.rokk.is og sækja vinsælasta lagið þar sem heitir: Hvar er Guðmundur?
Tilvitnun dagsins: ,,Hvar er Guðmundur?".
Lag dagsins: Hvar er Guðmundur?.
Próf dagsins: Þýska 403.
Yfir og út.
Posted at 04:19 am by ibbi
Permalink
Sunday, April 24, 2005
Lífið er sápuópera og ég fæ óskarinn.
Já, ég hef ekki verið iðinn við kolann undanfarið á þessu blogdóti. Ef verið í miklum önnum, alltof miklum. En svo það fari nú ekkert á milli mála þá er ég á lífi og heill heilsu, amk á líkama. Einsog allir vita þá er Súperstar í fullum gangi og hefur það gengið mjög vel, oftast. Nokkrar sýningar eftir og farið að styttast í hinn endann á þessu. Sauðburður hafin og á fjórða tug lamba hafa skriðið í heiminn undanfarna viku, alltof mörg miðað við árstíma. Markaðið slatta í gær, stíft og lögg, bitið og stíft, miðhlutað og hana nú. En já ég er búin að vera rosalega pirraður undanfarna daga því það er einn hrærigrautur inn á hausnum á mér, allt að rugla mig. Ýmsir hlutir hafa gerst sem fóru miður í mann, stór orð fallið sem fóru vel í mann fyrst og síðan önnur sem fóru verr..særindi í gangi.. skólinn er að gera mig brjálaðan, alltof mikið af ritgerðum og skilaverkefnum sem hafa síðasta skiludag í þessari viku. Maður sér fram á nokkrar vökunæturnar yfir bókunum, ömurlegt.
En já ég er varla að nenna þessu og bið ykkur vel að lifa.
Tilvitnun dagsins: ,,Ég næ ekki andanum".
blehe
Posted at 05:47 pm by ibbi
Permalink
Wednesday, April 13, 2005
Já það hafa nokkrir dagar liðið síðan ég potaði síðast einhverjum orðum inn á þessu síðu. Ég hef bara einfaldlega ekki nennt því og er varla að nenna því núna þar sem ég er sárlasinn. Lasinn á besta tíma eða þannig, frumsýning á laugardaginn og maður þrælstíflaður og með hálsbólgu. Alls ekki sniðugt. Annars er rokkóperan allveg að smella saman, og margt þarna allveg skuggalega flott. Ég skora á alla Hornfirðina nær og fjær að mæta og berja þetta augum! Ég skora bara á alla sem lesa þetta að mæta, hvar sem þeir eru staddir!
Annars er nú lítið að frétta, maður hefir bara verið að standa í leikritinu og skólinn hefur einhvern neginn verið í bakgrunni hjá mér, er búinn að mæta illa í hann undanfarið en það skiptir svo sem engu svakalegu máli þar sem ég er nú svo vel stæður þar á bæ. En já frumsýning á Jesus Christ Superstar er laugardaginn 16. apríl og hlakka ég allveg helling til.. Það verður þrælskemmtilegt að sýna þetta og svo verður nú haldið flott frumsýningarpartý. Sumir eru að tala um stress í kringum þetta.. ég finn allaveganna ekki fyrir neinu svoleiðis og vona að ég sleppi allveg við það. Annars held ég að allir leikarar eigi eftir að stækka allveg helling þegar áhorfendur eru komnir og muni gjörsamlega meika það. Tónlistin er orðin tilbúin og hafa þeir Heiðar, Siggi og Frikki unnið glæsigott verk og sérstaklega sá síðastnefndi sem fyllti lögin af lífi og geysilegum krafti með þrsusuöflugum gítarleik. Magnað! Rokkað! Það má líka segja það að JCS æði hafi gengið yfir bæinn, myndir og fréttir af þessu á öðrum hverjum degi á ljósvakamiðlum bæjarins og í stórfréttablaðinu Eystrahorni. Líka skondið þegar maður er í búðinni og er ávarpaður Jesú og um daginn sagði kona við mig: Hvað blessar okkur hér með nærveru þinni..hehe fyndið.. En já það er feikimikill fílingur í þessu.
En það er frekar súrt að standa í kvefi núna og vona ég svo sannarlega að maður verði orðinn góður þegar að sýningum kemur.. Var næstum liðið yfir mig í gær á æfingu sem er alls ekki nógu gott. Ég ætla að fara með myndavél á æfinguna í kvöld og smella nokkrum myndum og jafnvel að henda þeim á netið svo fólk sjái nú umgjörðina á þessu.
En hehe einsog þið kannskið sjáið er fátt sem kemst inn í hausinn á manni en þetta leikrit þannig að ég hef um lítið annað að tala. Ég hlakka reyndar til að komast í sveitina og heilsa uppá rollurnar mínar.. það fer að styttast í sauðburðinn og þá verður nú aldeilis nóg að gera. Jájá..
Ég leik þennan gaur sem hengur á krossinum...
Tilvitnun dagsins: ,,Nothing´s gonna change my world".
Bið að heilsa, Jesú.
Posted at 06:26 am by ibbi
Permalink
Thursday, April 07, 2005
Já..lítið að frétta... Fór í sund kl 7 í gærmorgun með Söru og Emil.. það var mjög hressandi og maður vaknaði við það og mætti maður ferskur í skólann. Dagurinn leið gersamlega tíðindalaus, og síðan var superstar æfing um kvöldið og klukkan var langt gengin í tólf þegar maður kom útá höfn aftur.. Tókum þá nokkra hringi og síðan skellti maður sér barasta upp í rúm.. Gekk samt illa að ná mér niður.. ég á við einhverja gífurlega svefnörðuleika þessa daganna og það bitnar á mætingu í skólanum.. það hefur sennilega verið komið undir morgun þegar ég loksins festi svefn..þannig að..
..ég vaknaði ekki fyrr en klukkan 11 í morgun, grútsyfjaður en samt búinn að sofa af mér þrjár kennslusundir. Var á vappinu uppí skóla til um fimm, fór þá uppí íbúð að fá mér að éta og svo var maður mættur rúmlega hálfsex upp í Mánagarð til að halda áfram æfingum.. Þar var kvöldinu síðan eytt..
En já ég er í frekar þungu skapi núna sem er svosem ekkert að ástæðulausu en það verður ekki farið útí þá sálma hér.. Ég er ógeðslega þreyttur en get samt ekki sofnað, þegar ég leggst upp í rúm þá ligg ég bara kyrr og stari útí loftið..mér tekst ekki að sofna og það er ömurlegt..
Einn hlutur samt sem ég er búinn að vera að spá svolítið í dag.. Ég las einhvers staðar setninguna, Ég er lygari. Ég fór að spá... er hægt að segja þetta? ég meina.. Er hægt að setja fram rökfræðilegar skýringar með þessari setningu? ég er enn að velta þessu fyrir mér og hlýt að komast að botninum fljótlega...
Tilvitnun dagsins: ,,I´m just a dreamer".
Annars segi ég þetta gott og bið ykkur vel að lifa..
Undir og inn.
Posted at 07:01 pm by ibbi
Permalink
Tuesday, April 05, 2005
Emil getur átt sínar tær og Nanna sína sundlaug..
Gott fólk, nú verður bloggað.
Já, hmm ætli að maður byrji ekki á gærdeginum sem var nú allveg afspynu leiðinlegur dagur, en mánudagar eiga það gjarnan til að falla í þá gryfju. Er ekki annars þriðjudagskvöld í kvöld? Jújú segjum það bara. En jámm mér gekk allveg ægilega illa að festa svefn á sunndagskvöldið, þó svo að ég hafi lesið örugglega um 20 Andrés blöð þangað til að klukkan var langt gengin 3. Í þokkabót svaf ég síðan ömurlega og jafnframt yfir mig. Vaknaði sem sagt ekki fyrr en um 11 leytið með þvílíka verki um allan skrokk, mér leið eins og prinsessunni sem svaf á bauninni. En jamm þar með var ég búinn að sofa af mér þrjá tíma en dreif mig síðan í stærðfræði kl 1 og síðan þýsku.Eftir það leið dagurinn frekar tíðina lítill þar til kl. hálfsjö að komið var að enn einni Superstar æfingunni. Loksins var lokið við seinni helminginn á leikritinu og þar með búið að sviðsetja allt verkið. Þegar við vorum búinn að renna þessu mætti sllati af fólki. Fólk sem sá um sviðsmynd og búninga og svo voru einhverjir skólameistarar þarna að horfa á. Siggi Mar mætti einnig með cameruna og smellti nokkrum hópmyndum af leikurunum. Þegar við vorum í þann mund að fara að leggja af stað frá Mángarði gerðist samt allveg skelfilegur atburður. Það vill svo til að hann Emil karlinn er sennilega orðinn eitthvað leiður á að vera með afbrigðilegar tær, svo hann ákvað að gera heiðarlega tilraun til þess að toga mig með sér í teimi. Allaveganna þá tók hann stólinn sem hann sat á skellti honum á löngutánna á mér og hlammaði sér síðan á hann. Aumingja ég rak upp skaðræðis óp af sársauka og hrukku þá allir í salnum heldur betur í kút. Ekki lét ég þar við sitja heldur gaf stólnum hans Emils duglegt spark. En ég var ekki að vorkenna sjálfum mér lengi því að Emil greyið fölnaði upp og bað mig gráti nær að fyrirgefa sér.. svona 15 sinnum. Ég hugsaði mig lengi um en á endanum tók ég fyrigefningarbeiðni hans gilda og sem betur fer fyrir manninn þá fékk hann litinn í andlitið aftur. :) Með stóra tá var síðan brunað útá Höfn, rúntað í smá stund og síðan farið bara upp í íbúð. klukkan var þá farin að nálgast miðnættið. Eitthvað var ég nú svangur þegar þangað kom að ég ákvað barasta að elda mér hakk og spaghetti, ásamt spældum eggjum. Þegar kl. var að verða 1 var ég orðinn mettur og glaður, og já ég er furðufugl. Þrátt fyrir þetta þá tókst mér nú ekki að sofna vegna mikla táverkja. Fékk reyndar símhringinu frá fjarstaddri vinkonu..En klukkan hefur sennilega verið farin að ganga í 4 eða eitthvað þegar ég loksins sveif inn í náttmyrkvið...
Þriðjudagurinn 5. apríl.
Vaknaði kl hálfsjö í morgun eftir mjög stuttan svefn því að Emil og Nanna höfðu platað mig og Söru í sund. jájá ég var kominn á rúntinn korter í sjö hress og kátur og beið eftir að sundlaugin opnaði og krakkarnir myndu mæta.. EN.. einn var gallinn á.. Þegar ég var farinn að lengja eftir krökkunum þá ákvað ég nú að athuga málin.. stoppaði fyrir utan sundlaugina og viti menn, þar stóð: Lokað í dag vegna viðgerða. Svefninn fyrir lítið! ha! Ég varð.. reiður...fúll...þreyttur..urg.. En já ég fór bara útí íbúð og fékk mér hálfa engjaþykkni og fór síðan bara á rúntinn með Söru, en hún fór nefnilega líka illa útúr þessu sundlaugarveseni. Það var frekar einkennilegt að rúnta svona eldsnemma um morguninn! En okkur tókst að vakna vel við það og mættum í góðum gír í félagsfræðina hjá honum Sigurgeiri.. En jæja ég fór nú síðan að leita skýringar með þetta sundlaugardæmi, bæði hjá Emil og Nönnu. Í ljós kom síðan að þau höfðu vitað það kvöldið áður að sundlaugin myndi verða lokuð, en höfðu GLEYMT AÐ LÁTA MANN VITA..! Takk fyrir það..! Þannig að Nanna og Emil:
heheheh... :) en neinei börnin mín ég er ekkert reiður útí ykkur..munið bara í pabba bænum að láta mig vita næst. En jamm restin af deginum leið nú hálf látlaust í skólanum, maður var síðan bara að læra seinni partinn og fram á kvöld og síðan kíkti ég í heimsókn heim til Sædísar. Síðan sit ég núna á rassgatinu.. og er búinn að láta plata mig í sund aftur í fyrramálið.. Jafn gott að hún verði ekki lokuð þá...
Svo ég komi aftur inná draumapælingar, þá er eitt svolítið einkennilegt sem hrjáir mig. Svo er nú mál með vexti að mig dreymir aldrei nokkurn skapaðan hlut þegar ég sef út á Höfn en alltaf allveg heilan helling þegar ég sef heima í sveitinni. Hér með óska ég eftir skýringu á þessu fyrirbæri.
Tilvitnun dagsins: ,,Amy, come sit on my wall."
Þetta fer nú að verða ágætt. En ein spurning.. Blogga ég of langar færslur? Nennir einhver að lesa þetta?
Ég vaki yfir ykkur, yfir og út.
Posted at 04:43 pm by ibbi
Permalink
|
|

I am a man, of constant sorrow.
|
|